Fara á efnissvæði
Aftur í fréttayfirlit

Hver ber ábyrgð? - Af umönnunarbili, fæðingarorlofi og tekjutapi

Alþjóðlegur baráttudagur kvenna 8. mars

Hádegisfundur í tilefni af Alþjóðlegum baráttudegi kvenna 8. mars.
Til fundarins bjóða ASÍ, BHM, BSRB, Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga Fíh, Kennarasamband Íslands, Kvenréttindafélag Íslands og Samtök starfsmanna fjármálafyrirtækja SSF.
Fundurinn verður á Hilton Reykjavík Nordica, sal FG á 2. hæð og streymt á Zoom kl. 11:30-13:00. Hann fer fram á íslensku en rittúlkun verður á ensku. Streymt verður frá viðburðinum hér: https://livestream.com/accounts/5108236/events/11104125
Upptaka verður aðgengileg að fundi loknum.
Fundarstýra: Kolbrún Halldórsdóttir, formaður BHM
Fyrirlesarar:
● Guðný Björk Eydal, prófessor í félagsráðjöf. Fæðingarorlof - reynsla, þróun og framtíðarsýn - 20 mín.
● Maya Staub, sérfræðingur hjá Vörðu rannsóknastofnun vinnumarkaðarins. Samræming fjölskyldu- og atvinnulífs barnafjölskyldna á Íslandi.
● Halldóra Guðmundsdóttir, varaformaður Félags stjórnenda leikskóla. Barnið vex en brókin ekki.
Að loknum erindum verða pallborðsumræður með Anna Maria Milosz - skrifstofufulltrúi hjá Reykjavíkurborg , Guðnýju Björk Eydal - prófessor í félagsráðgjöf, Sigríði Ingibjörgu Ingadóttur - hagfræðingur BSRB, Sveinlaugu Sigurðardóttur - varaformaður Félags leikskólakennara.