Fara á efnissvæði
Aftur í fréttayfirlit

Vel heppnaður fundur í Bergen

Vel heppnaður fundur verslunarfólks frá Norðurlöndunum

Það er óhætt að fullyrða að Bergen hafi skartað sínu fegursta á ársfundi NHK, samstarfsnefndar samtaka verslunarfólks á Norðurlöndunum sem kom saman dagana 20. – 22. Maí síðast liðin. Það er raunar skemmtilegt að segja frá því að þetta samstarf á sér yfir 100 ára sögu þegar fyrsta samstarfsnefndin var stofnuð 1918 og það var m.a. vegna þessa samstarfs sem Landssamband íslenzkra verzlunarmanna varð til, því samkvæmt starfsreglum forvera NHK, voru það landssambönd, en ekki einstök félög sem gátu fengið aðild og hefur LÍV átt aðild að þessu samstarfi frá 1960. Í ár sóttu ársfund NHK þau Eiður Stefánsson, formaður LÍV, Anna Á Halldórsdóttir í stjórn LÍV og Sigmundur Halldórsson alþjóðafulltrúi LÍV.


Samstarfið hefur alla tíð gengið vel og stendur á traustum grunni. Raunar svo traustum fjárhagsgrunni að tekin var sú ákvörðun að fella niður félagsgjöld næstu tvö starfsár. Auk þess að efla tengsl forystu verslunarfélaga á Norðurlöndunum, þá heldur NHK úti samstarfi vegna starfsmenntamála, Evrópskra samstarfsráða launafólks (EWC), námskeiðum fyrir ungt fólk í verslunarfélögum, auk þess að taka þátt í starfi alþjóðastofnana á borð við UNI Europa og í þríhliða viðræðum ESB, UNI Europa og EuroCommerce. Með þessu samstarfi hafa verslunarfélög á Norðurlöndunum tryggt sér öfluga rödd á alþjóða vettvangi og eiga samstarf um sameiginlega hagsmunamál. Hér á landi höfum við dýpkað þekkingu okkar á vinnumarkaðinum á hinum Norðurlöndunum, m.a. aflað okkur upplýsinga varðandi verkbönn, haldnir hafa verið fundir lögmanna vegna svokallað ”Lufthansa dóms” og unnið þétt með systur samtökum okkar þegar kemur að ótryggum ráðningarsamningum, sjálfvirknivæðingu og gervigreind.

Á ársfundinum var gestur okkar Michael Bolton, formaður verslunardeildar UNI Global Union, sem greindi fundinum frá því að frá sjónarmiði UNI Global Union skiptu engin félög meira máli en stéttarfélögin á Norðurlöndunum. Þau hefðu lagt fram meira en flest til alþjóðlegrar samvinnu. Sem hefði sannarlega skilað frábærum árangri líkt og Bangladesh samkomulagið væri skýrasta dæmið um. Það hefði verið fyrir þrýsting frá sænsku stéttarfélögunum á H&M sem þar hefði orði grunnur að þessu stórkostlega samkomulagi, sem hefði gjörbreytt aðstæðum vinnandi fólks í Bangladesh og í dag eru 220 aðilar að samkomulaginu. Það kom jafnframt fram að alþjóðasamtök launafólks þurfi að endurskoða starf sitt og þar sé mikilvægt að Norðurlöndin komi að. Áskoranir séu nægar og nú séu stærstu fyrirtæki í heimi að beina augum sínum að alþjóðastofnunum til þess að gera atlögu að grundvallar réttindum launafólks. Við þessu verði að bregðast.
Það kom líka fram á fundinum að nýir vindar blása í stefnumörkun ESB. Hægri flokkar sem lítinn áhuga hafa á því að efla samtök launafólks hafa náð meirihluta í ráðherraráðinu og þinginu. Sú staðreynd, ásamt helstu niðurstöðum í skýrslu Mario Draghi, sé líkleg til þess að ýta til hliðar hugmyndum um aukna samfélagslega ábyrgð fyrirtækja. Áherslan verði á einföldun regluverks, minna eftirlit og stór auknar fjárfestingar. Á sama tíma sé þrýstingur á að draga úr áherslu á græna hagkerfið.

Við hér á Íslandi stöndum augljóslega frammi fyrir áskorunum. Aukin samkeppni frá Kína, viðskiptastríð og stríðsátök í Úkraínu og Palestínu hafa bein áhrif á launafólk á Íslandi. Samstaða og samstarf okkar við launafólk á hinum Norðurlöndunum er því mikilvægara en nokkru sinni fyrr. Við ætlum okkur að tryggja að það vinnumarkaðsmódel sem byggt hefur verið upp á Norðurlöndunum standi traustum fótum til framtíðar.

Á myndinni eru fulltrúar allra verslunarsambanda innan NHK, auk Michael Bolton frá UNI Global UNion