Þrír dagar í uppsögn kjarasamninga
05. október 2026Möguleg uppsögn kjarasamninga ákveðin í dag
Samninganefnd LÍV munu koma saman til fundar í dag, mánudaginn 5. október 2026, á sameiginlegum fundi með samninganefnd VR, þar sem farið verður yfir stöðuna og næstu skref vegna forsendubrests kjarasamninga.
VR, LÍV og Fagfélögin hafa ítrekað lagt fram tillögur að lausnum til að kjarasamningar geti haldið en Samtök atvinnulífsins hafa ekki sýnt neina viðleitni til að mæta þeirri stöðu sem launafólk er í vegna forsendubrests kjarasamninga.
Ljóst er að stórir hópar innan LÍV hafa eingöngu fengið samningsbundnar hækkanir og hefur því þurft að þola kaupmáttarrýrnun þar sem verðbólga hefur verið mun meiri en umsamdar launahækkanir. Á meðan sveitarfélög og ríkið hafa nú þegar lagt fram hugmyndir um hvernig koma megi til móts við barnafólk og þau sem verst hafa orðið úti, þá hefur SA skilað auðu. Þaðan hefur eina svarið verið að launafólki beri að hafa trú á verkefninu. En viðbrögð SA við hugmyndum frá VR, LÍV og Fagfélögunum benda ekki til þess að þau hafi sérstaka trú á verkefninu og erfitt er að túlka viðbrögð þeirra með öðrum hætti en að SA hafi mögulega engan áhuga á því að samningar haldi.