Fara á efnissvæði
Aftur í fréttayfirlit

Stjórn VR samþykkir uppsögn

Stjórn VR samþykkir uppsögn kjarasamninga

Stjórn VR, stærsta aðildarfélag LÍV, samþykkti á fundi sínum að kvöldi 7. október að segja upp kjarasamningi félagsins við Samtök atvinnulífsins vegna forsendubrests. Samkvæmt forsenduákvæði kjarasamninga VR þarf að segja upp samningnum fyrir kl. 16:00 í dag, 8. október 2026.

VR hefur, frá því í ágúst, reynt að ná samkomulagi við SA um viðbragð við alvarlegum forsendubresti kjarasamninga, en án árangurs. Innan VR eru stórir hópar sem hafa undirgengist raunlaunalækkanir í tvö ár í þeirri von að vextir lækki og verðbólga minnkar.  Það hefur ekki raungerst og forsendur samninganna brustu í ágúst. 

VR hefur verið í samstarfi við LÍV og Fagfélögin sem hafa sameiginlega lagt fram margar tillögur að lausn, m.a. launaauka og ný forsenduákvæði, en SA hefur hafnað öllum hugmyndum félaganna. Stjórnvöld hafa einnig lagt fram tillögur til að liðka fyrir viðræðum, en það hefur ekki dugað til. VR mun því að öllu óbreyttu segja samningnum upp í dag.