Fara á efnissvæði
Aftur í fréttayfirlit

Sameiginlegur fundur um réttlát umskipti

Morgunverðarfundur um réttlát umskipti 14. nóvember

Þriðjudaginn 14. nóvember gangast BHM, BSRB og ASÍ fyrir sameiginlegum morgunverðarfundi um réttlát umskipti á vinnumarkaði. Fundurinn fer fram í salnum VOX Club á Hótel Hilton Nordica, milli kl. 8:30-10:00

Loftslagsbreytingar munu hafa víðtæk áhrif á samfélagið, efnahag, atvinnulíf og vinnumarkað. Hver áhrif breytinganna verða er undir því komið hvaða stefna verður mörkuð og hvort tryggt verði að aðgerðir í baráttunni gegn loftslagsbreytingum séu samræmdar markmiðum um starfs- og afkomuöryggi og góð lífskjör.

Á fundinum verður fjallað um hugmyndafræðina sem réttlát umskipti byggja á og hvaða þýðingu þau hafa fyrir íslenskt samfélag, vinnumarkað, efnahag og velferð launafólks. Leitast verður við að varpa ljósi á núverandi stefnu og aðgerðir stjórnvalda og hvað uppá vantar til að markmið um réttlát umskipti náist.

Erindi og pallborð
Fundarstaðurinn opnar klukkan 08:00 með því að boðið verður upp á morgunverð.
Beint streymi verður af fundinum fyrir þau sem komast ekki á staðinn: https://www.facebook.com/events/864452925233935

Erindi flytja Halldór Þorgeirsson formaður Loftslagsráðs, Auður Alfa Ólafsdóttir, sérfræðingur hjá ASÍ, Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, hagfræðingur BSRB, og Kolbrún Halldórsdóttir, formaður BHM.

Í lokin verður pallborð með forystufólki heildarsamtakanna þriggja; Finnbirni A. Hermannssyni, forseta ASÍ, Sonju Ýr Þorbergsdóttur, formanni BSRB og Kolbrúnu Halldórsdóttur, formanni BHM.  
Fráfarandi framkvæmdastjóri Landverndar, Auður Önnu Magnúsdóttir verður fundarstjóri og stýrir pallborði.

Til fundarins er boðað í aðdraganda þríhliða fundar norrænna stjórnvalda og aðila vinnumarkaðar um réttlát umskipti, sem fram fer í Hörpu 1. desember næstkomandi.