Aftur í fréttayfirlit
Orð skulu standa
14. september 2026Hvað ætlið þið að gera?
Þegar kjarasamningar voru undirritaðir tók launafólk mikla áhættu með því að fallast á lágar launahækkanir á verðbólgutímum. Á móti ætluðu fyrirtæki að halda aftur af verðhækkunum til að ná niður verðbólgu og vöxtum. En verð hefur hækkað látlaust og vextir eru svimandi háir. Forsendur kjarasamninga eru brostnar og þeir gætu losnað 8. október nk.
LÍV, VR og Fagfélögin hafa sent verðmótandi fyrirtækjum bréf og óskað svara um hvað þau ætli að leggja af mörkum svo að kjarasamningar geti haldið gildi sínu. Óbreytt ástand er ekki valkostur. Hér fyrir neðan er listi yfir þau fyrirtæki sem fengu bréfið sent og afrit af bréfinu.
Orð skulu standa!
______________________________
Bréf til fyrirtækja
Listi yfir fyrirtækin
- Arion banki
- Bera
- Drangar
- Eimskipafélag Íslands
- Festi
- Garri
- Hagar
- HS Orka
- Innnes
- Íslandsbanki
- ÍSAM / Ó. Johnson & Kaaber
- Kaupfélag Skagfirðinga
- Kvika banki
- Landsbankinn
- Landsvirkjun
- Natan
- Orkuveitan
- RARIK
- Samskip
- Sláturfélag Suðurlands
- Veitur