Fara á efnissvæði
Aftur í fréttayfirlit

Nú er nóg komið

Það er komið nóg!

Nokkur samtök launafólks í Bretlandi hafa hrint af stað herferð undir kjörorðunum "Enough is Enough" og hafa á skömmum tíma safnað hundruðum þúsunda undirskrifta þar sem settar eru fram einfaldar kröfur um aðgerðir vegna versnandi stöðu launafólks á Bretlandi.

"Sanngjörn laun, reikningar sem við ráðum við að borga, matur fyrir alla og mansæmandi húsnæði. Þetta er ekki lúxus, þetta eru mannréttindi"

Svo segir á vef sem aðstandendur þessarar herferðar opnuðu í byrjun ágúst og nú þegar hafa hundruðir þúsunda skrifað undir kröfur þeirra sem eru:

  1. Raunverulegar kjarabætur
  2. Lækkun orkureikninga
  3. Endum matarfátækt
  4. Mannsæmandi húsnæði
  5. Skattleggjum þau ríku

Kynntu þér herfðina á vefnum þeirra