Fara á efnissvæði
Aftur í fréttayfirlit

LÍV styður verkfallsaðgerðir BSRB

LÍV styður BSRB

Stjórn Landssambands íslenzkra verzlunarmanna lýsir yfir fullum stuðningi við verkfallsaðgerðir félaga í BSRB. Félagsfólk aðildarfélaga í BSRB krefst jafnréttis á vinnumarkaði, sömu launa og annað launafólk fyrir sama eða sambærilegt starf. Jafnrétti er ein grundvallarkrafa verkalýðshreyfingarinnar og LÍV styður þær aðgerðir sem BSRB telur nauðsynlegar til að knýja það fram.

Stjórn LÍV