Fara á efnissvæði
Aftur í fréttayfirlit

Landssamband íslenzkra verzlunarmanna, VR og samflot iðn- og tæknigreina saman í kjaraviðræður

Landssamband íslenzkra verzlunarmanna, VR og samflot iðn- og tæknigreina saman í kjaraviðræður

LÍV, VR og samflot iðn- og tæknigreina hafa ákveðið að taka höndum saman í yfirstandandi kjaraviðræðum við Samtök atvinnulífsins. Samninganefndir aðila vísuðu viðræðum til ríkissáttasemjara um miðjan síðasta mánuð og hafa frá þeim tíma unnið að því að ná nýjum samningi sitt í hvoru lagi, en án árangurs. Kjarasamningar á almennum vinnumarkaði hafa verið lausir í rúman mánuð.

Ríkur vilji er meðal stéttarfélaganna að vinna saman að nýjum kjarasamningi hratt og vel og standa vonir til þess að góð niðurstaða náist fljótlega.

Innan þessa samflots eru um 59 þúsund félagsfólk. Innan samflots iðn- og tæknigreina eru MATVÍS, Rafiðnaðarsamband Íslands, Samiðn og VM.