Fara á efnissvæði
Aftur í fréttayfirlit

Kjarasamningar LÍV við SA og FA samþykktir

Kjarasamningar við SA og FA samþykktir

Niðurstöður í atkvæðagreiðslu meðal félaga LÍV í kosningu um nýgerða kjarasamninga við Samtök atvinnulífsins og Félag atvinnurekenda liggja nú fyrir.

Kjarasamningur LIV við SA var samþykktur með 88,2% atkvæða í kosningu sem lauk á hádegi í dag, en já sögðu 643 félagsfólk í félögum innan LÍV og nei sögðu 67 eða 9,19%. Þau sem tóku ekki afstöðu voru 19 eða 2,61%. Á kjörskrá um samning LÍV og SA var 3576 félagsfólk í félögum innan LÍV og greiddu 729 atkvæði, og var kjörsókn því 20,39%.

Kjarasamningur LÍV við FA var samþykktur með 93,75% atkvæða, en já sögðu 16 LÍV félagar. Á kjörskrá um samning LÍV og FA voru 55 LÍV félagar og greiddu 16 atkvæði, og var kjörsókn því 29,09%.

Atkvæðagreiðslan var rafræn og var haldin dagana 18.- 21. mars 2022.

Á sama tíma fór fram kosning um kjarasamning VR, en VR er stærsta aðildarfélag LÍV.

Kjarasamningur VR við SA var samþykktur með 78,56% atkvæða í kosningu sem lauk á hádegi í dag, en já sögðu 5.485 VR félagar og nei sögðu 1.325 eða 18,98%. Þau sem tóku ekki afstöðu voru 172 eða 2,46%. Á kjörskrá um samning VR og SA voru 39.639 VR félagar og greiddu 6.982 atkvæði, og var kjörsókn því 17,61%.

Kjarasamningur VR við FA var samþykktur með 80,12% atkvæða, en já sögðu 262 VR félagar og nei 60, eða 18,35%. Þau sem tóku ekki afstöðu voru 5 eða 1,53%. Á kjörskrá um samning VR og FA voru 1.242 VR félagar og greiddu 327 atkvæði, og var kjörsókn því 26,33%

Niðurstöður félaga LÍV

Niðurstöður atkvæðagreiðslu um kjarasamning LÍV og SA og FA