Gagnrýni á nýtt fyrirkomulag Wolt í Noregi
07. ágúst 2026Gagnrýni á nýja staðgengilsfyrirkomulag Wolts: Ábyrgð og áhætta færð yfir á sendla
Nýtt fyrirkomulag hjá Wolt í Noregi, sem gerir sendlum kleift að fela öðrum að sinna verkefnum í sinni fjarveru, hefur vakið harða gagnrýni frá bæði sendlum og stéttarfélöguim. Gagnrýnendur telja að fyrirtækið sé með þessu að færa ábyrgð og áhættu yfir á einstaklingana í stað þess að axla hana sjálft.
Samkvæmt fyrirkomulaginu geta sendlar boðið staðgengli að taka við aðgangi sínum á meðan þeir eru fjarverandi. Hins vegar bera sendlarnir sjálfir fulla ábyrgð á því að staðgengillinn hafi löglegan rétt til að starfa og dvelja í Noregi, auk þess sem þeir bera ábyrgð ef eitthvað fer úrskeiðis við afhendingar eða ef staðgengill brýtur lög eða skilmála Wolts.
Erik Sandnes, sendill hjá Wolt í Ósló, segir fyrirkomulagið óþarft þar sem sendlar séu sjálfstætt starfandi og geti sjálfir ákveðið hvenær þeir vinni. Að hans mati sé þetta skýrasta dæmið hingað til um að fyrirtækið reyni að losa sig undan ábyrgð.
Fellesforbundet, eitt stærsta stéttarfélag Noregs, tekur undir gagnrýnina. Dag-Einar Sivertsen, sambandsritari félagsins, segir fyrirkomulagið vekja alvarlegar spurningar um raunverulega stöðu sendlanna. Ef þeir séu í raun sjálfstæðir atvinnurekendur ætti fyrirtækið ekki að þurfa að stýra því hvernig þeir skipuleggja fjarveru sína. Á sama tíma sé erfitt að skilja hvers vegna fólk sem hafi hvorki fasta vinnuskyldu né vinnutíma þurfi að útvega eigin staðgengla.
Að mati Fellesforbundet undirstrikar málið þörfina fyrir skýrari reglur um starfsskilyrði í vettvangshagkerfinu. Félagið telur að með þessu sé áhætta og ábyrgð færð frá fyrirtækinu yfir á einstaklinga, þrátt fyrir að fyrirtækið setji jafnframt reglur og skilyrði sem líkist hefðbundnu ráðningarsambandi.
Wolt hafnar gagnrýninni. Christian Kamhaug, samskiptastjóri fyrirtækisins, segir að réttur sjálfstætt starfandi einstaklinga til að nýta sér staðgengla sé viðurkenndur samkvæmt evrópskum rétti. Hann segir að fyrirtækið hafi einfaldlega gert þessa heimild aðgengilegri í appi sínu og að hún sé alfarið valkvæð. Jafnframt séu kröfur um skjöl og staðfestingar settar til að tryggja að allir sem starfi í gegnum vettvanginn hafi heimild til að vinna og þekki ábyrgð sína.
Umræðan endurspeglar áframhaldandi ágreining um stöðu starfsfólks í vettvangshagkerfinu og mörkin milli sjálfstæðrar verktöku og ráðningarsambands.
Heimild: FriFagbevegelse