Fulltrúar Norðurlanda funda
02. júní 2026Samtök launafólks og atvinnurekenda funda um stöðu Norðurland
Fulltrúar samtaka launafólks í verslun og þjónustu, ásamt samtökum atvinnurekenda á sama sviði, komu saman til fundar í Reykjavík í dag á ársfundi NHK, sem er samstarfsvettvangur stéttarfélaga á sviði verslunar og þjónustu á Norðurlöndunum.
Á fundinum var þema dagsins staða Norðurlanda og samkeppnishæfni þeirra og var kynning frá Nordregio þar sem Hjördís Guðmundsdóttir og Maria Bobrinskaya kynntu skýrslu um stöð Norðurlanda 2026 (State Of The Nordic Region 2026). Skýrslan endurspeglar vel bæði áskoranir og tækifæri Norðurlanda.
Mjög hefur dregið úr fólksfjölgun á öllum Norðurlöndunum og raunar er það svo að fæðingartíðni fólks sem fætt er og uppalið á Norðurlöndunum er ekki nægileg til þess að halda í horfinu hvað varðar fólksfjölda. Þjónusta við foreldra og möguleika þeirra til þess að vera á vinnumarkaði er því mikilvægur þáttur í að bregðast við þessari þróun. Líkt og félög innan LÍV hafa vakið athygli á, skipa leikskólar lykilhlutverk í því að auðvelda foreldrum að taka þátt í vinnumarkaðinum. Há gjöld fyrir þjónustu og tekjutengingar, ásamt minni tækifærum til menntunar og atvinnu, geta dregið úr áhuga foreldra á barneignum.
Ljóst er að án innflytjenda væri fólki því að fækka á Norðurlöndunum. Í því samhengi var áhugavert að sjá áhrif ferðaþjónustu á fjölbreytileika hér á landi, en hann mælist mestur á suðurlandi, þar sem ferðaþjónusta hefur blómstrað á undanförnum árum. Ferðaþjónustan hefur verið leiðandi í atvinnusköpun og mörg störf kallað á þekkingu og færni sem innflytjendur hafa flutt með sér hingað til lands. Verslun og þjónusta er þannig greinilega í lykilhlutverki í sköpun starfa á undanförnum árum. Vöxturinn er mestur í þeim störfum sem kalla á bæði færni og menntun, á meðan störfum fækkar meðal ófaglærðra.
Vinnumarkaðurinn á Norðurlöndum á það líka sameiginlegt að störfum fer fjölgandi í þjónustu og verslun, á meðan hefðbundnum störfum í landbúnaði og iðnaði fer fækkandi. Sömuleiðis er framleiðni aukning frekar lítill í samanburði við bæði ESB og Bandaríkin, þótt Ísland standi ágætlega í samanburði við Norðurlöndin.

Maria Bobrinskaya