Fara á efnissvæði
Aftur í fréttayfirlit

Fullgilding samþykktar um aðgerðir og ofbeldi á vinnustöðum

Undirbúningur hafinn fyrir fullgildingu samþykktar um aðgerðir og ofbeldi á vinnustöðum

Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, hefur skipað vinnuhóp sem ætlað er að undirbúa fyrirhugaða fullgildingu samþykktar Alþjóðavinnumálastofnunarinnar (ILO) nr. 190 um aðgerðir gegn ofbeldi og áreitni á vinnustöðum. LÍV hefur um árabil kallað eftir innleiðingu á 190. samþykkt ILO m.a. í ályktun á síðasta þingi LÍV sem fram fór í október 2025.

Samkvæmt frétt frá Félags- húsnæðismálaráðuneytinu verður hlutverk vinnuhópsins að greina efni samþykktarinnar og leggja mat á hvort og þá hvaða breytingar á íslenskri löggjöf fullgilding hennar hefur í för með sér.

„Ofbeldi og áreitni eiga ekki að líðast á vinnumarkaði. Með vinnunni sem nú er farin af stað leggjum við grunninn að því að styrkja vernd starfsfólks og stuðla að öruggu og heilbrigðu starfsumhverfi,“ segir Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra.

Dr. María Rún Bjarnadóttir er formaður vinnuhópsins. Auk hennar eiga fulltrúa í hópnum Alþýðusamband Íslands (ASÍ), Bandalag háskólamanna (BHM), Bandalag starfsmanna ríkis og bæja (BSRB), fjármála- og efnahagsráðuneytið, innviðaráðuneytið, Samband íslenskra sveitarfélaga, Samgöngustofa, Samtök atvinnulífsins og Vinnueftirlit ríkisins.

Samþykkt Alþjóðavinnumálastofnunarinnar nr. 190 fjallar um aðgerðir gegn ofbeldi og áreitni á vinnustöðum og hefur það að markmiði að stuðla að öruggu og heilbrigðu starfsumhverfi þar sem virðing er borin fyrir réttindum starfsfólks. Hluti samþykktarinnar fellur undir málefnasvið innviðaráðuneytisins.

Gert er ráð fyrir að hópurinn ljúki störfum fyrir lok árs og að í kjölfar þess verði unnt að ganga frá fullgildingu samþykktarinnar hér á landi, meðal annars með viðeigandi lagabreytingum þar sem við á.

Í könnun VR, stærsta stéttarfélagsins innan LÍV sem gerð var 2023 kom fram að yfir helmingur allra VR félaga hefur orðið fyrir áreitni eða ofbeldi í starfi á ferlinum, eða 54%. Hlutfallið er hærra hjá erlendu félagsfólki eða 60% og hæst meðal kvenna á aldrinum 25 til 34 ára, eða 67%. Þessi niðurstaða var sláandi og bendir til þess að áreitni og ofbeldi í starfi sé útbreitt og alvarlegt vandamál á Íslandi.

Alþjóðleg samtök verslunarfólks hafa um árabil barist fyrir samþykkt Alþjóðavinnumálastofnunarinnar (ILO) nr. 190 og vakið athygli á neikvæðum áhrifum ofbeldis og áreitis á verslunarfólk