Fara á efnissvæði
Aftur í fréttayfirlit

Fjölsóttur fundur um húsnæðismál

Skýr krafa um aukna ábyrgð stjórnvalda í húsnæðismálum

Húsnæðismál eru eitt stærsta og brýnasta kjaramál vinnandi fólks á Íslandi. Þetta var skýr niðurstaða fjölmenns fundar VR og Samtaka iðnaðarins sem haldinn var þriðjudaginn 3. febrúar, undir yfirskriftinni Samstaða um úrbætur í húsnæðismálum. Þar komu saman fulltrúar launafólks, atvinnulífs, sveitarfélaga og stofnana sem með einum eða öðrum hætti koma að húsnæðisuppbyggingu í landinu.

Á fundinum ríkti óvenjulegur samhljómur um að stjórnvöld verði að eiga stærra hlutverk í húsnæðismálum. Þrátt fyrir að ekki hafi ríkt algjör samstaða um nákvæma aðkomu ríkis og sveitarfélaga að uppbyggingu íbúðarhúsnæðis, var almennur vilji til samstarfs og samvinnu augljós. Markmiðið er skýrt: að einfalda ferla, stytta framkvæmdatíma og tryggja að framboð íbúða mæti raunverulegum þörfum samfélagsins.

Húsnæði sem kjaramál

VR hefur um árabil lagt ríka áherslu á húsnæðisöryggi launafólks. Í erindi sínu á fundinum fjallaði Halla Gunnarsdóttir, formaður VR, um húsnæðismál frá sjónarhóli vinnandi fólks og undirstrikaði að húsnæði væri stærsti einstaki áhrifaþáttur verðbólgunnar. Hún hvatti stjórnvöld til að horfa lengra en skammtímalausnir og átaksverkefni.

„Það þarf að hefja húsnæðismálin úr farvegi átaksverkefna og tryggja langtímasýn með það að markmiði að allir geti komið sér þaki yfir höfuðið á viðráðanlegum kjörum,“ sagði Halla og bætti við að sjaldan hefði samhljómur verið jafn skýr milli stærsta stéttarfélags landsins og stærstu samtaka atvinnurekenda.

Í ávarpi félags- og húsnæðismálaráðherra, Ragnars Þórs Ingólfssonar, kom fram að ríkisstjórnin væri reiðubúin að skoða leiðir til að koma til móts við sveitarfélög, sérstaklega þegar kemur að innviðauppbyggingu sem oft er flöskuháls í nýrri íbúðabyggð.

Frá greiningu til aðgerða

Á fundinum sátu fulltrúar frá nánast öllum hliðum húsnæðismarkaðarins: verktakar, arkitektar, fasteignafélög, sveitarfélög, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun og samtök launafólks. Fjallað var um stöðu húsnæðismála í upphafi árs, framtíðarhorfur og þá stóru spurningu hvernig hægt sé að færa umræðuna frá orðum til athafna.

Kristín Amalía Líndal, hagfræðingur hjá HMS, greindi stöðu markaðarins, Ingólfur Bender, aðalhagfræðingur SI, fór yfir gjaldtökuheimildir sveitarfélaga og áhrif þeirra á uppbyggingu, og fulltrúar úr framkvæmdageiranum lýstu raunverulegum áskorunum á vettvangi. Þá var einnig fjallað um hvernig breytt aldurssamsetning þjóðarinnar muni hafa áhrif á húsnæðisþörf á næstu árum.

Í pallborðsumræðum tóku þátt fulltrúar sveitarfélaga, verktaka, íbúðafélaga, arkitekta, launafólks og atvinnulífs, og urðu umræður líflegar og gagnorðar. Þar var enn áréttað að lausnirnar liggi ekki hjá einum aðila heldur krefjist sameiginlegrar ábyrgðar og skýrari forystu.

Sameiginlegt ákall

Fundurinn sendi skýr skilaboð: Húsnæðismál eru ekki aðeins skipulags- eða markaðsmál, heldur grundvallarkjaramál sem snerta lífskjör, verðbólgu og samfélagslega stöðugleika. Samstaða VR og Samtaka iðnaðarins undirstrikar að breiður vilji er til staðar um að taka skrefin næstu – ef stjórnvöld eru tilbúin að hlusta og axla ábyrgð.

Fundinn í heild sinni má sjá á netinu.

Heimild: VR