Fara á efnissvæði
Aftur í fréttayfirlit

Ber launafólk ábyrgð á stöðugleikanum?

Sanngjarnt og réttlátt?

„Er sanngjarnt og réttlátt að láta þann sístækkandi hóp venjulegra launamanna sem á í erfiðleikum með að láta enda ná saman í hverjum mánuði bera einan ábyrgð á stöðugleika sem bætir fyrst og síðast fjárhagslega tilveru annarra?“ spyr Þórður Snær Júlíusson í leiðara í Kjarnanum. Þar fjallar hann um hvort það geti verið sanngjörn og réttlát krafa á hendur launafólki að það skuli bera meiri ábyrgð, en þeir sem hafa hagnast gríðarlega á undanförnum árum.

Þórður Snær segir leiðaranum "Ótrú­legt en satt þá skilja flestir að það tapa allir á höfr­unga­hlaupi víxl­verk­andi launa­hækk­ana. Það að sækja sífellt fleiri krónur í veskið skilar sér ekki í auknum kaup­mætti heldur éti verð­bólga hann upp með auk­inni dýr­tíð og stór­auknum afborg­unum af hús­næð­is­lán­um. Og það er sann­ar­lega hægt að fá launa­fólkið til að taka þátt í að ná því mark­miði að mynda stöð­ug­leika með hóf­legum kröf­um. En það verður að vera stöð­ug­leiki allra. Hinir ang­arn­ir; rík­is­stjórn­in, Seðla­bank­inn og atvinnu­líf­ið, verða að spila með og leggja sitt að mörk­um. Það gera þeir ekki. Þvert á móti auka þeir mis­skipt­ingu og passa fyrst og fremst upp á sitt."

Leiðarinn er hér í heild sinni