Fara á efnissvæði
Aftur í fréttayfirlit

Aukum öryggi starfsfólks í verslun

Samstarf um öryggi starfsfólks

LÍV, VR og SVÞ hafa tekið höndum saman til að stuðla að auknu öryggi verslunarfólks á Íslandi en bæði starfsfólk í verslun og atvinnurekendur hafa áhyggjur af vaxandi ofbeldi og áreitni gagnvart verslunarfólki í starfi. Fulltrúar allra aðila undirrituðu í dag, 16. júní, minnisblað sem leggur grunninn að frekara samstarfi á þessum vettvangi.

Landssamband íslenzkra verzlunarmanna, VR og Samtök verslunar og þjónustu sammælast um það í minnisblaðinu að setja á laggirnar vinnuhóp sem í munu sitja fulltrúar bæði  launafólks og atvinnurekenda. Verkefni hópsins eur meðal annars að draga fram þær áskoranir og hættur sem varða öryggi starfsfólks verslana. Vinnuhópurinn mun taka saman yfirlit yfir aðgerðir sem fyrirtæki hafa gripið til, verklag og viðmið sem gagnast gætu öðrum fyrirtækjum og starfsfólki þeirra. Þá mun hópurinn setja saman lista með hugmyndum um önnur viðbrögð eða vinnulag sem gagnast gæti í baráttunni gegn ofbeldi í verslun.

Fyrirhugað er að starfi vinnuhópsins ljúki fyrir lok október 2025. LÍV, VR og SVÞ munu nýta niðurstöðurnar til frekara samstarfs og samtals við stjórnvöld.

Í könnun VR meðal félagsfólks kom fram að yfir helmingur allra VR félaga hefur orðið fyrir áreitni eða ofbeldi í starfi á starfsferlinum, eða 54%. Svipað hlutfall á við um sölu- og afgreiðslufólk. Könnunin var gerð haustið 2023 (sjá hér frétt um könnunina).

👉 Sjá minnisblaðið hér (pdf).

Halla Gunnarsdóttir, formaður VR, Eiður Stefánsson, formaður LÍV og Benedikt S Benediktsson, framkvæmdastjóri SVÞ

Frá vinstri: Halla Gunnarsdóttir, formaður VR, Eiður Stefánsson, formaður LÍV og Benedikt S Benediktsson, framkvæmdastjóri SVÞ.