Alþjóðasamtök stéttarfélaga fordæma árásir
04. mars 2026Fordæma árásir og kalla eftir tafarlausu vopnahléi
Níu alþjóðleg samtök stéttarfélaga (Global Union Federations) hafa sent frá sér sameiginlega yfirlýsingu þar sem þau fordæma nýlegar árásir Bandaríkjanna og Ísraels gegn Íran. Í yfirlýsingunni er bent á að loftárásir hafi leitt til dauða og meiðsla almennra borgara og eyðileggingar á mikilvægum innviðum, þar á meðal skólum og heilbrigðisstofnunum.
Samtökin telja að árásirnar feli í sér alvarleg brot á stofnsáttmála Sameinuðu Þjóðanna og alþjóðlegum mannúðarlögum. Þá er einnig lýst yfir áhyggjum af gagnárásum Írans og þeirri hættu sem stigmögnun átaka hefur í för með sér fyrir almenning og starfsfólk í lykilstörfum.
Í yfirlýsingunni er sérstaklega bent á að vinnandi fólk beri oft þyngstu byrðarnar í slíkum átökum. Þar á meðal eru farandverkamenn og starfsfólk í samgöngum, til dæmis í höfnum, á flugvöllum og á sjó, sem þegar hefur látið lífið og hlotið meiðsli vegna átaka á svæðinu.
Alþjóðasamtök stéttarfélaga leggja áherslu á að starfsfólk, almennir borgarar og samfélagslegir innviðir eigi aldrei að vera skotmörk hernaðaraðgerða. Árásir á skóla, sjúkrahús og aðra verndaða innviði séu óásættanlegar og verði að fordæma með skýrum hætti.
Samtökin kalla eftir tafarlausu vopnahléi og að alþjóðasamfélagið beiti sér fyrir friði. Þá leggja þau áherslu á að samskipti og samningar séu eina raunhæfa leiðin til að tryggja öryggi og varanlegan frið.
Jafnframt er hvatt til þess að alþjóðalög og stofnsáttmáli Sameinuðu þjóðanna verði virt, að borgaralegir innviðir á borð við skóla, sjúkrahús og vinnustaði verði verndaðir og að mannréttindi, réttindi launafólks og félagafrelsi verði tryggð.
Hreyfing launafólks lýsir yfir samstöðu með verkafólki, sjálfstæðum stéttarfélögum og samfélögum í Íran og víðar á svæðinu. Í yfirlýsingunni er lögð áhersla á að rödd launafólks verði að heyrast og að framtíð svæðisins verði ákveðin af fólkinu sjálfu – án utanaðkomandi árása og innlendrar kúgunar.
Yfirlýsinguna undirrita:
Education International
International Domestic Workers Federation
Public Services International
International Federation of Journalists
International Transport Workers’ Federation
IndustriALL Global Union
UNI Global Union
International Union of Food, Agricultural, Hotel, Restaurant, Catering, Tobacco and Allied Workers’ Associations
Building and Wood Workers’ International
LÍV er aðili að UNI Global Union
Heimild: UNI Global Union