Fara á efnissvæði
Aftur í fréttayfirlit

Allir verði að leggja sitt af mörkum

Sameiginlegt ákall LÍV, VR og Fagfélaganna: Allir verði að leggja sitt af mörkum

Landssamband íslenskra verslunarmanna (LÍV), VR og Fagfélögin hafa tekið höndum saman í nýrri auglýsingaherferð þar sem stjórnvöld, sveitarfélög og fyrirtæki eru hvött til að axla ábyrgð á stöðunni í efnahagsmálum. Átakið kemur á viðkvæmum tíma, þar sem allt stefnir í að kjarasamningar losni í haust með ófyrirsjáanlegum afleiðingum.

Undanfarin misseri hefur launafólk borið hitann og þungann af erfiðu efnahagsástandi. Þrálát verðbólga, háir stýrivextir og vaxandi atvinnuleysi hafa þrengt að heimilum landsins. Á sama tíma heldur verðlag áfram að hækka á meðan launafólk situr eftir og nær ekki að halda í við þróunina.

Félögin leggja áherslu á að nú sé komið að öðrum aðilum samfélagsins að stíga fram. Fyrirtæki, stjórnvöld og sveitarfélög hafi öll lykilhlutverk í að leiðrétta stöðuna og skapa forsendur fyrir stöðugleika.

Skýr krafa um aðgerðir

Í herferðinni eru settar fram skýrar kröfur til helstu aðila samfélagsins:

Arðsemiskrafa stórfyrirtækja lækki
Stór fyrirtæki, þar á meðal heild- og smásalar sem og fjármálafyrirtæki, hafa veruleg áhrif á verðmyndun í landinu. Þau eru hvött til að lækka arðsemiskröfu sína í að minnsta kosti tvö ár til að draga úr verðþrýstingi og létta undir með heimilunum.

Gjaldskrár leiðréttar og leikskólar varðir
Sveitarfélög eru gagnrýnd fyrir nýlegar gjaldskrárhækkanir, sérstaklega á grunnþjónustu eins og hita, rafmagni og leikskólagjöldum. Krafist er að þessar hækkanir verði dregnar til baka og að gjaldskrár verði frystar á gildistíma næstu kjarasamninga. Jafnframt er lögð áhersla á að sveitarfélög hætti að þrengja að rekstri almennra leikskóla.

Verðhækkanir á innlendri matvöru stöðvaðar
Félögin kalla eftir því að orsakir verðhækkana á innlendri matvöru verði greindar með markvissum hætti og gripið verði til aðgerða til að stöðva þær.

Stuðningur við barnafólk og húsnæðiskaupendur
Nauðsynlegt er að styðja sérstaklega við þá hópa sem bera þyngstu byrðarnar. Félögin krefjast þess að barnabætur, húsnæðisbætur og vaxtabætur verði styrktar og að þær haldi í við verðlag.

Raunhæfar lausnir í húsnæðismálum
Að lokum er lögð áhersla á að ríki og sveitarfélög vinni saman að því að skapa stöðugleika á húsnæðismarkaði. Stöðva þurfi brask með lóðir og tryggja að Bjarg íbúðafélag fái byggingarhæfar lóðir bæði til skemmri og lengri tíma.

Sameiginleg ábyrgð á stöðugleika

Með herferðinni vilja LÍV, VR og Fagfélögin senda skýr skilaboð: Stöðugleiki næst ekki nema allir leggi sitt af mörkum. Ef ekki verður brugðist við er hætta á að spennan á vinnumarkaði aukist enn frekar þegar líður að hausti.