Fara á efnissvæði
Aftur í fréttayfirlit

76% ekki notið launaskriðs

76% ekki fengið launahækkun umfram kjarasamninga

Þrír af hverjum fjórum á vinnumarkaði hafa ekki fengið launahækkun umfram kjarasamningsbundnar launahækkanir síðustu 2 ár, samkvæmt könnun Gallups fyrir VR, LÍV og Fagfélögin sem gerð var í september. Það þýðir að einungis um fjórðungur hefur fengið hækkun umfram kjarasamninga. Þessi niðurstaða er þvert á yfirlýsingar atvinnurekenda um mikið launaskrið á vinnumarkaði. Ljóst er að það launaskrið á við um mjög afmarkaða hópa, því þess sjást alls ekki merki í þessum niðurstöðum.

Niðurstaða Gallups er í samræmi við þær kannanir sem gerðar hafa verið meðal félagsfólks þessara félaga. Könnun Gallups sýnir að launalægri hópar og launafólk á landsbyggðinni hafi síður fengið launahækkun umfram kjarasamninga.

Könnun Gallups var gerð dagana 17. til 28. september 2026 og var úrtak hennar 1.990 einstaklingar. Svarhlutfall var 43,2% eða 859 svör.