1. maí 2025 ávarp frá formanni
01. maí 2025Við sköpum verðmætin
Kæru félagar,
Til hamingju með daginn!
Verkalýðsdeginum er fagnað um allt land undir kjörorðunum Við sköpum verðmætin. Í orðunum felst áminning um mikilvægi launafólks í uppbyggingu velferðasamfélagsins sem við búum í og að með samheldni höfum við náð árangri sem tekið er eftir á heimsvísu. Í ár er þess einnig minnst að fimmtíu ár eru liðin frá því að konur lögðu niður störf með eftirminnilegum hætti og mörkuðu þannig spor sín í söguna. Áfanganum er fagnað með því að tileinka árið konum og bera hátíðarhöld stéttarfélaganna þess merki.
Verkalýðshreyfingin hefur gegnt veigamiklu hlutverki í að tryggja launafólki ýmis réttindi, samfélaginu til heilla. Saga hreyfingarinnar spannar ríflega 100 ár og á þeim tíma höfum við náð fram samkomulagi um atvinnuleysistryggingar, jöfn laun fyrir sömu vinnu, stofnun sjúkrasjóða, rétt til fæðingarorlofs, orlofsrétt og svo mætti lengi áfram telja.
Með gerð kjarasamninga hafa stéttarfélögin tryggt félagsfólki lágmarkslaunakjör innan starfsgreina, skapað ramma um vinnutíma, veikindarétt og uppsagnarfrest, auk fjölda annarra samningsatriða sem mynda leikreglur á vinnumarkaði. Kjarasamningar eru þannig ein af meginstoðum samfélagsins, í þeim felst fyrirsjánleiki og ákveðin trygging fyrir samningsaðila sem ber að efna á báða bóga.
Stéttarfélög erlendis horfa gjarnan til hins norræna velferðarmódels og þeirrar stöðu sem skandinavísk stéttarfélög hafa skapað sér, einkum þau íslensku, en hlutfall launafólks með félagsaðild í stéttarfélögum er með þeim hæstu á heimsvísu hér á landi. Það gefur auga leið að samningsstaða heildarsamtaka sem nær til meginþorra launafólks er sterk.
Erlendis er þessari samningsstöðu ógnað með ýmsum hætti; fyrirtæki neita að ráða fólk til vinnu sem er skráð í stéttarfélag og gerðir eru samningar við gul stéttarfélög sem jafnvel eru í eigu fyrirtækjanna sjálfra. Markmiðið er alltaf hið sama, að borga aldrei laun umfram lægstu taxta, ganga eins hart að réttindum starfsfólks og hægt er og trygggja að sem minnst af hagnaði fyrirtækisins gangi til samfélagsins.
Það eru risar eins og Amazon og Tesla sem fara þarna fremst í flokki, en það er yfirlýst stefna þeirra að semja ekki við stéttarfélög. Fræg er deila IF Metall í Svíþjóð við Tesla, þar sem stéttarfélagið berst fyrir mannsæmandi kjörum fyrir sitt félagsfólk og stendur samhliða vörð um réttindi launafólks til þess að semja um sín kjör.
Þessar ógnir birtast hér á landi í formi gulra stéttarfélaga eins og t.d. Virðingu sem er stofnað af atvinnurekendum með það eitt að markmiði að rýra kjör þeirra sem lægstu launin hafa. Þá má nefna gerviverktöku og ýmsar atlögur að samningsfrelsi stéttarfélaga með tillögum að lagabreytingum um starfsemi þeirra. Það er hlutverk okkar nú sem áður að verjast þessum ógnum og standa vörð um réttindi sem hafa áunnist með samstöðu og elju launafólks. Í krafti fjöldans höfum við náð árangri með það að markmiði að byggja réttlátt samfélag þar sem allar stéttir njóta afrakstursins. Staðreyndin er sú að þau lönd þar sem verkalýðshreyfingin stendur sterkum fótum eru kjör almennings betri.
Það er von mín að um allt land komi fólk saman og nýti daginn til þess að fagna áfangasigrum verkalýðshreyfingarinnar, þetta er okkar dagur!
Eiður Stefánsson, formaður Landssambands íslenzkra verzlunarmanna og Félags verslunar- og skrifstofufólks Akureyri og nágrenni.